augun
Nú sé ég bara þoku næstu dagana því ég greindist með rafsuðublindu á háu stigi!!! Hafiði fengið svoleiðis? Það er eins og það sé verið að skvetta sandi í augun á manni í 2 sólarhringa. Ég gat ekki litið upp…eða einbeitt mér af að horfa á hluti. Er að fara í 3ðja skiptið á stuttum tíma til augnlæknis á mánudaginn. ÞEtta var svo svæsið að hann hefur bara ekki séð annað eins. Ég er búin að vera svo áhyggjufull af að fá ekki skýra sjón aftur, en hann segir að ég fái hana. Ég sé ekki svart, heldur bara þoku og það eru sár á hornhimnunni.