Ég á 3ja mánaða kort í ræktinni og skiptin sem ég fer þangað…þeim er alltaf að fækka og eru komin niður í einu sinni í viku!!!! Ég sem ætlaði að fylgjast með kaloríuskránni á litla skjánum á þrekhjólinu og sjá kaloríurnar fjúka af mér…bæbæ kaloríur!!!! En nei, ég segi alltaf:Á morgun og á morgun segir sá lati! Þetta var ekki ódýrt kort skal ég ykkur segja sko! Ég tók íþróttabúninginn með mér í skólann því ræktin er á leiðinni heim, en NEEEI no no no ekki fór ég í gær!!! VEEERÐ að fara í dag, það gengur ekki að fara bara einu sinni í viku og ætlast til að ná árangri.