Einn kennarinn minn var að tvífótbrjóta sig hérna úti á landi eftir að hafa dottið á ójöfnum svellbunka. Sjá datt ég fyrirvaralaust á bakið en leit sko EKKI í kringum mig, því ég datt fyrir framan ALÞJÓÐ!!!!!
Þeir rétt strá sandi yfir svæðið! Þetta er bara GLER og það á að ÞEKJA þetta. Ég blótaði í sand og ösku.
Svo sagði ég mömmu kærasta míns frá þessu og hún sagði: “Æiii meiddirðu þig” Hún er svo tillitssöm. Hún sagði mér hvað einn sona hennar sagði þegar hann var lítill og hún kom heim og sagðist hafa dottið á svelli:“Mamma sá þig einhver” :D Þá hafði hann samúð með henni ef hún skyldi hafa haft sig að fífli :D