Þar sem ég fæ þynnku frá helvíti rannsakaði ég þetta mál. Þynnkan orsakast víst af skorti af nauðsynlegum bætiefnum og vökva úr líkamanum.
#1 ekki drekka (en fyrst þú spurðir)
annars…
Drekka mikið vatn fyrir svefninn, láttu fljóta með tvær magnýl (EKKI parasetamól eða þannig nema þú viljir fá nýja lifur fyrir þrítugt), borðaðu eitthvað staðgott líka (mæli með Nonna).
Ef maginn í þér er í lagi þótt allt hitt sé ónýtt færðu þér eitthvað að borða þegar þú vaknar V8 ávaxtasafi og t.d. lasagna er víst frábært. Fyrir mig er það bara shake á McD og flaska af Fuel þegar sá eðall fékkst hér á landi.
Samt, forvarnir virka alltaf best. Passaðu þig á að blanda ekki mörgum tegundum. Varaðu þig á rauðvíni (of gott til að sleppa því) og sætir marglitir kokkteilar ku vera HELL. Tölum ekki einu sinni um skot…
Þetta er margslungið mál og ég mun halda áfram tilraunum á mínum eigin líkama í þágu vísindanna þangað til lækning finnst eða ég dey úr skorpulifur.