Já, æðislegur matur og allt frábært….en þann 2. jan. eru 4 dagar í að ég fari aftur til Akureyrar í skólann :/
Loksins þegar ég er búin að venjast því að vera hérna heima.
Auðvitað er skólinn skemmtilegur, en ég hef vanist því að alltaf sé einhver heima til að taka á móti mér alltaf eitthvað fjölskyldufólk til að tala við. En svo fer ég alein á gistiheimilið þar sem maður þarf að sjá um sameign 5 daga í mánuði!!! Æi, það venst aftur, ég veit það. 2 og hálft ár eru eftir af þessum skóla, og það er mjög fljótt að líða því ég kem til Rvíkur öll sumrin…það er lúxus :D