Það er bara svo tilgangslaust. Það hefur ekki verið auglýsingahlé í skaupinu síðan það byrjaði, af hverju að byrja á því núna?
Fólk á bara að hafa vit á því að pissa áður en skaupið byrjar, það er rúmur hálftími af auglýsingum á undan því, er það ekki nóg?
Svo er skaupið ekki nema rúmur klukkutími að lengd, og ég trúi ekki að það sé til manneskja sem er með svo pínkulitla blöðru að hún geti ekki haldið út klukkutíma.