aww mér finnst svo gaman að tala um þetta. Ég vakna frekar snemma og horfi á teiknimyndirnar og borða morgunmat, svo fer ég og keyri út þá pakka sem að ég á eftir að fara með, svo fer ég í bað um fjögurleitið, með alveg lush baðbombum og læti og svo klæði ég mig í sparifötin og hjálpa mömmu og pabba með það sem þarf, kveiki á öllum kertum, skræli kartöflur og svona, svo klukkan sex hlustum við á bjöllurnar og borðum svo og svo set ég í uppþvottavélina og svo opnum við pakka. Eftir að við erum búin að opna pakkana fer ég að leika mér með dótið mitt, núna nýlega hefur ekki verið mikið dót en ég fer þá og horfi á dvd myndirnar eða spila tölvuleikina, ef að við fáum eitthvað spil þá spilar oft fjölskyldan og fæ mér afganga af jólamatnum. Elska jólin