Það er bara svo margt. Undirbúningurinn allur, að sitja á kvöldin með mömmu að hlusta á bestu jólalögin og pakka inn gjöfum og skrifa á jólakortin. Þorláksmessukvöld þegar familían skreytir tréð. Að fara í kirkjugarðinn á aðfangadagsmorgun með skreyttan kross á leiðið hjá lang-ömmu og -afa. Og bara allar hefðirnar sem við höfum :D
Að vera með fjölskyldunni í ró og næði að drekka heitt kakó, pakka inn jólagjöfum og bara allir rólegir að hlusta á jólalög og baka pipkakökur og ég veit bara ekki hvað er ekki æðislegt við jólin:). Maturinn góður, fjölskyldan ekki stressuð, allt svo fallegt og bara allt:)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..