Reglugerðin um flugeldasölu heimilar að flugeldar séu seldir frá 27. desember fram til 6. janúar, þó svo að sjaldan sé selt á milli 1. og 5. janúar.
Flugeldasalan hjá björgunarsveitunum byrjar að jafnaði þann 28. desember og oftast er opið frá 10-22, en opnunartími fer vissulega eftir sveitunum sjálfum.
Þó er ekki opið lengur en til 4 á gamlársdag (að jafnaði, get ekki fullyrt alveg), enda þurfa söluaðilar í björgunarsveitunum einnig að komast heim til að fagna nýju ári með fjölskyldum sínum :)
Bætt við 28. desember 2006 - 22:41
Afsakið, reglugerðin heimilar flugeldasölu frá 28. desember til 6. janúar, að báðum dögunum meðtöldum.
Biðst afsökunar á mistökunum.