Ég var í svakalegu jólaskapi um daginn, svo hamdi ég það…
Vil helst ekki byrja í jólaskapinu fyrr en seinni part nóvember, það eyðileggur svo fyrir að vera í jólaskapi 1/4 af árinu….
Annars er líka eitt annað tengt jólunum sem ég þarf að berjast við, það er helvítis maltið og appelsínið, þetta í dósunum. Það er byrjað að seljaþað, og mér finnst það svo svakalega gott, að ég slysast til að kaupa það… Málið er bara að ég hef reynsluna á hvað gerist þegar ég kaupi það, í miðjum des var ég kominn með ógeð í fyrra… Ætla ekki að láta það gerast :]