Endilega ef þú hefur tíma þá skaltu reyna að standa fyrir því. Ég persónulega hef því miður engann tíma, er að skipta um eldhúsinnréttingu og var að láta skíra litlu stelpuna mína. Ég er ekki einusinni búin að hafa tíma til að skreyta heima hjá mér. Þarf þó að fara að finna tíma fyrir það svo að eldri stelpan mín fái smá jólafíling.
Það væri ekki vitlaust að fá saman hóp, hringja svo í mannin (auðvelt að finna númerið því við vitum jú heimilsfangið) eða konuna hans og fá leyfi til þess að koma og hjálpa til við þetta. En þá þyrfti eflaust að gefa loforð um að koma og taka þetta niður aftur. Það þyrfti svo sem ekki að vera allt sem hann setur upp venjulega, bara svona hluti af því til að hann fái svolítið af sinni venjulegu jólagleði.
Tzipporah