Kæru hugarar, nú er klukkan orðin fimm á aðfangadag og jólin við það að ganga í garð. Jólailmur skriðinn um húsið og búið að keyra öllum jólakortum og pökkum til réttra eiganda um bæinn endilangann!
Ég er að fara að klæða mig í sparifötin, nýkomin úr baði, og bara klukkutími í að við fjölskyldan setjumst til borðs og borðum jólasteikina, sem er hamborgarahryggur að þessu sinni.
Svo mun pakkaflóðið byrja en þeir eru komnir undir jólatréð og mikið að hlakka til:)

Þetta eru sannkölluð jól!!:)

Ég vil óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári, sem mund ganga í garð eftir viku…
…árið 2003!!:):)