Svo að ég komi nú með hugmynd, þá væri flott að hafa svona kubb hér á huga með jólageisladiskum sem fólk mælir með. Það er kannski ekki lífsnauðsynlegt en gaman væri að sjá hvernig fólk tekur undir.
Það væri náttúrulega líka flott ef að það væri jólauppskrifta kubbur og ýmislegt svona en þetta er nú bara uppástunga.

Svo hefur borið á því hér á jólaáhugamálinu að fólk sé að senda inn texta af jólalögum, sem greinar. Það er gott og gilt en mér fyndist sniðugra að hafa svona jólalagakubb sem að fólk getur þá sent inn jólalagatexta inn ef það vill, svo að textarnir séu ekki að þvælast meðal greinanna.

Jæja, látið mig svo endilega vita hvað ykkur finnst!