Halló!
Ég er í smá klípu, það er þannig að tengdamömmu langar að gefa manninum mínum eitthvert veiðimyndband í jólagjöf en vandamálið er að ég er búin að kaupa það sem hann langar í og það heitir silungur og æ… eitthvað, það er s.s. um veiði í Eyjafjarðará meðal annars. Spurningin er þessi, hvaða öðru myndbandi mælið þið með handa stangaveiðimanni í jólagjöf? Endilega ef þið hafið einhverjar hugmyndir sendið þá hér inn og ekki vera feimin ;o) Ég setti þetta inn á veiðiáhugamálið líka en svo sá ég að það hefur ekki verið póstað inn á korkana þar síðan í sept. og ég er alveg ráðalaus ég bara verð að fá svar. Takk, Kv. Fanny
<br><br>Sjarap Salomon!