Ég líka. Við settum seríur í glugga og á svalirnar í fyrrakvöld og svo var auðvitað kveikt á aðventuljósinu í morgun. Erum með 3 kassa af jólaskrauti sem á að setja upp í dag, get varla beðið eftir að byrja að skreyta. Ég er líka búin að vera óvenju duglega að föndra og er búin að gera öll jólakortin sjálf og svo er ég næstum því búin að kaupa allar gjafir en er að fara út núna til að klára þær af (vonandi)
Ég ætla að njóta þess að taka það rólega í desember og ekki lenda í þessu týpíska jólastressi.
Það eina sem vantar til að fullkomna jólastuðið er snjórinn, ég vil hafa snjó en ekki rok og rigninu.