ég er 13 ára og ég er pínu gelgja eins og flestir á þeim aldri en þó er ég ekki að alveg að deyja úr gelgju td er mér oftast sama um útlitið mitt….mála mig ALDREI (barasta nenni því ekki) og er ekkert búin að hugsa um stráka og píkustæla allt þetta ár (er kannski að komast upp úr því að ganga á eftir öllu af hinu kyninu…who knows) en já þetta með jólakærasta…
Sko ég er eins og ég sagði áðan þá er ég ekki með strák og hef ekki verið að eltast eikkað við þá undanfarið en núna síðustu daga er ég að deyja úr löngun í góðan, skemmtilegan, sætan og jákvæðan kærasta… td til að drekka heitt kakó (Swiss miss) og borða smákökur með á þorláksmesu og kannski kíkja aðeins niður í bæ til að komast í smá rómantíska jólatemningu!!! Svo hefur mig líka langað doltið til að hafa einhvern annan en mömmu eða fjölskylduna mína hjá mér…svona til að hafa einhvern við hlið sér sem að maður veit að þykir vænt um mann og manni þykir sjálfum líka vænt um hann, einhvern til að faðma og gráta á öxlinni hjá þegar að manni líður illa og til að óska gleðilegra jóla á aðfangadagskvöld og upplifa þessa bestu hátíð ársins í ást, rómantík og kærleik !!!
Mig langar ekki til að vera með strák til að sýna niður í bæ…mér finnst það verulega andstyggilegt gagnvart stráknum!!!
Kannski er hann virkilega hrifinn af mér og við byrjum saman um jólin og ég færi niður í bæ með honum til að sýna hann….svo myndi ég kannski dömpa honum daginn eftir þrettándann….ég gæti það aldrei…það er svo kvikindslegt….strákurinn myndi verða alveg þvílíkt sár þegar að hann fattaði þetta og ég barasta gæti það ekki!!!
ÞAÐ ER ÞAÐ VERSTA SEM ÉG VEIT AÐ MISNOTA STRÁKA SVONA TIL AÐ SÝNAST!!!!!
kv. Syndaselur
PS. hafið jólin nú sem best og gleðilegust á kvikindisskaps!!!!