Mér hlakkar alveg hrikalega mikið til jólanna þó að það sé ennþá bara nóvember! Í fyrradag var mamma að kaupa jólagjafir og það kom mér í hrikalega mikið stuð!!! En það skiptir allavegana engu máli. Við erum samt ekkert búin að hefja jólaundirbúninginn en hann kemur með tímanum. Mamma ætlar að gera það bráðum því að hún segist ekki ætla að vera á síðustu stundu með allt!
En ég vildi bara segja ykkur hérna á Huga hvað mig hlakkar mikið til jólanna! En ég veit að ykkur finnst þetta ógeðslega leiðinleg grein en ég veit að Magga, besta vinkona mín segir það sama um jólin og ég. Og ekki skrifa athugasemdir um hvað þetta er leiðinleg grein. Ég veit það og það þarf ekki að segja mér það. Mig langaði bara svo til að skrifa einhverja grein!