Jú nú erum við komnir til St Gallen þar sem milliriðillinn fer fram, erum á hinu fínasta hóteli. Ég er með Birki í herbergi sem hefur ekki verið að gera góða hluti sem herbergisfélagi undanfarinna daga, málið er að hann hlítur að vera eitthvað veikur í maganum, þvi alldrei á minni meðal löngu ævi hef ég fundið eins slæma lykt og drengurinn gefur frá sér, þessi lykt er svo slæm að menn hafa staðfest að einnig finnist bragð af þessum útblæstri drengsins, ég hef íhugað að sofna með tappa í nefinu óþefurinn og bragðið hefur hreinlega rænt af mér svefni…..