Jæja, enn einn korkurinn um EM! Vona samt að það sé enginn annar um leikinn klukkan 17:00… (ég tékkaði allavegana og sá engan)
Allavegana, hvernig fer leikurinn á eftir?
Eigum við séns í Króata?
Þeir spila svo allt öðruvísi leik heldur en við, eru með geðveikan markvörð (Sola) og já… Þeir spila frekar hraðan og tuddalegan handbolta! :/
Ég er ekki viss um hvort við vinnum þennan leik, samt er alltaf von! :) Það þarf samt held ég e-ð mikið til, Alesander er td ekki með og það er mikill missir í vörninni :/
Hvað segið þið….