Ef þú átt eitthvað vantalað við mig….slepptu því að segja það.
Frábær árangur Óla dugði ekki.
Ólafur Stefánsson var alveg stórkostlegur og skoraði heil 16 mörk fyrir Magdeburg gegn spænska liðinu Portland San Antonio(USA-USA-Herma eftir USA) í Meistaradeild Evrópu í handbolta en liðin voru að keppa á Spáni í gærkvöld. Það var þó ekki nógu gott fyrir Magdeburg því að niðurstaðan var einungis jafntefli, 34:34, en þar sem Portland San Antonio vann fyrri leikinn á heimavelli Magdeburg, 26:22, er liðið komið í undanúrslit en Evrópumeistarar Magdeburg eru úr leik. Sigfús Sigurðsson skoraði 2 mörk fyrir Magdeburg.