Þó að Gunnar Berg Viktorsson hafi enn
ekki leikið á HM er hann efstur á
“litla HM” sem haldið er á
herbergisganginum þar sem strákarnir
dvelja. Nokkrir leikmanna hafa komið
upp harðri keppni þar sem þeir skiptast
á um að standa í “markinu” og hinir
reyna að skora hjá honum út vítaskotum
af þriggja metra færi með mjúkum
barnabolta.

Gunnar Berg hefur hingað til unnið fimm
svokölluð “stór gull” og er því efstur
í deildarkeppninni.