Ég veit það ekki sjálfur. Geturðu aðeins lýst þessu betur hvað kom fyrir blæðandi eyrun þín? Auðvitað myndi maður ekki hlægja ef það fer að blæða úr eyranu. Það er bara alvöru mál. Leitaðu til læknis eins og skot ef þetta hættir ekki.
Þú fékkst semsagt rýting inní annað eyrað þitt og útvarpið gerir sársaukan þinn bara illt verra á meðan þú hlustar á óskalög sjúklinga hahahaha. Æi fyrirgefðu ég á víst ekki að hlægja að þessu.
En vonandi lagast þetta allt saman. Ég óska þér svo góðs bata.
Já takk fyrir það, reyndar er rýtingurinn í eyrað táknmynd fyrir sársaukann sem ég fæ þegar ég hlusta á enn eitt vinsældarlista lagið, ég æli gulu og dey að innan. Góð tónlist af hvaða sort sem er getur endurlífgað mig við.
Já gott fólk, því miður þá var ekkert hægt að gera við þessu. Enda var útvarpið stillt á topp 20 vinsældarlistan sem svo sorglega vildi til að einn fárveikur sjúklingur með blæðandi eyru með rýtingstáknmerki í eyranu andaðist nú nýlega.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..