Veistu, þú gætir varla komið með óljósari lýsingu á vandamáli þínu. Með útilokunaraðferðinni get ég komist að þeirri niðurstöðu að um og yfir 99% þeirra vandamála sem gætu hugsanlega ollið þessum vandamálum í PC tölvu, gætu átt við þetta tilfelli.
Geturðu séð myndbönd almennt, eða á þetta vandamál aðeins við huga?
Breyttirðu einhverjum stillingum nýlega, eða eru líkur til þess að slíkt hafi verið gert á tölvunni þinni?
Eru einhver önnur vandamál sem þjaka þessa tölvu, sem gætu eða gætu ekki haft nokkuð með þetta að gera?
Getur þú séð myndbönd sem krefjast forrita annarra en QT?
Ertu að nota multi-monitor setup, eða með fartölvu tengda við annan skjá (sama hvort laptop skjárinn er notaður eða ekki)?
Þetta eru bara nokkur vandamál sem mér datt strax í hug. Annars er fullt af öðrum vandamálum sem gætu hugsanlega verið að valda þessu, og þetta eru aðeins örfá dæmi.
Þú verður að útskýra vanda þinn betur, helst eins vel og þú getur, til þess að fá einhver gagnleg svör.