Já, þetta er nú meistara. OG las í blaðinu um daginn að þeir ælta að endur útgefa allar plötur sína í einhverjum spes hljómgæðum. þannig þarf að fara að safna fyrir þeim :)
Flott plata með Gilmour sem ég var að fá mér um daginn. Sum lögin eru frekar tæp en önnur eru frábær og minna mikið á late Pink Floyd. Pete Townshend samdi tvo texta á plötunni fyrir hann og þeir sem spila með honum á plötuna eru engir aðrir en Jeff Porcaro og Pino Palladino
Koverið af Then Play On (1969) frá Fleetwood Mac-inu hans Peter Green. Persónulega einhver besta plata sem ég hef hlustað á (þó þær séu margar “bestar”). Peter Green var náttúrulega bara meistari hérna back in the days áður en hann veiktist. Það má alls ekki gleyma að nefna Danny Kirwan sem seinna varð held ég bara útigangsmaður… svona nánast. Danny Kirwan samdi sex lög plötunnar og Green fimm af fjórtán lögum hennar, svo þeir eiga sinn hlut í henni báðir. Platan inniheldur einungis góð lög svo hallið ykkur aftur og njótið! OH WELL [youtube]http://www.youtube.com/watch?v=_s5ohxSPDUg RATTLESNAKE SHAKE [youtube]http://www.youtube.com/watch?v=TqKKGDcexZs LIKE CRYING [youtube]http://www.youtube.com/watch?v=WfqKPHQiiQs COMING YOUR WAY [youtube]http://www.youtube.com/watch?v=b_iU6Qo6EHY ALTHOUGH THE SUN IS SHINING [youtube]http://www.youtube.com/watch?v=tA5t2QzHBC0
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..