Hver gefur Pink Floyd mest? Þá er ég að tala um söng, tón, lög og beat og allt þannig. Leggið saman, ég segi Richard Wright, hún væri ekki söm án hans, R.I.P meistari.
Góður punktur, en hann byrjaði því eftir að David Gilmour hvatti hann til að syngja “Money”, samt var hann búin að skrifa slatta af lögum, líka búin að ýta Pink Floyd inn í þennan stíl.
David Gilmour, söngurinn og gítarinn eru mjög stór einkenni sveitarinnar, til dæmis er seinna sólóið í Comfortable Numb alfrægt. Ekki að hinir náungarnir hafi ekki verið stórir, Roger Waters væri næst á eftir ef ekki jafn mikið og Gilmour. Hins vegar þykir mér Nick Mason ekki spes trommari, en hann virkaði ágætlega fyrir þá.
Ég er mjög sammála þér. Pink Floyd væri ekki eins án Gilmour, en textasmíðin hans Roger spilar líka svo stórt hlutverk í öllum lögunum þeirra að ég get einfaldlega ekki gert upp á milli þeirra.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..