Muddy Waters er að mínu mati sá besti í þessum nútíma blús, þó hann sé náttúrulega eldgamall, og löngu látinn.
Hann spilar svokallaðan chicago blús, oft mjög djassað og mikið swing. Annars stór kall í þeim stíl er Howlin' Wolf.
En ef þú vilt meiri rótarblús eru gaurar eins og Son House, Robert Johnson, Mississippi John Hurt og Leadbelly alveg stórkostlegir, allir meðal fremstu gítarleikara allra tíma.
Fyrst þú ert að byrja í blúsnum er kannski ekki gott að sökkva sér strax í djúpu laugina, getur kannski byrjað að tékka á blúsrokksveitum eins og Cream og Rolling Stones, ég mæli með hljómsveit sem heitir Them, spilar mjög fínan blús, í þeirri sveit var goðið Van Morrison, mjög fínt að tékka á sólo dótinu hans líka, þó það sé oft meiri jazz og soul frekar en blús.
Ég vil líka benda þér á hið stórfína áhugamál “Jazz og blús” þar sem þú getur rætt um jazz, blús, kántrí, fólk, fönk og sáratónlist.