Tónlistarmaðurinn Ike Turner sem trúlegast var hvað þekktastur fyrir samstarf sitt og hjónaband með söngkonunni Tinu Turner, lést á heimili sínu í San Diego í Kalíforníu, 76 ára að aldri. Dánarorsök er ekki ljós.


Ike og Tina Turner árið 1966. AP

Tina Turner upplýsti í ævisögu sinni að maður hennar hefði verið fíkill og misþyrmt henni. Laurence Fishburne lék Ike Turner í myndinni What's Love Got To Do With It, sem byggð var á sjálfsævisögu Tinu.

Turner vísaði því hins vegar ásökunum fyrrum eiginkonu sinnar á bug í viðtali við AP fréttastofuna árið 2001 og sagði að fjölmiðlar hefðu svert mannorð hans.

Turner naut þó virðingar fyrir brautryðjendastarf í rokktónlist en tónlistarsagnfræðingar telja að Turner hafi gert fyrstu rokk og ról plötuna árið 1951 sem nefnd var Rocket 88. Hann fór nýlega í tónleikaferð um heiminn með hljómsveit sinni Kings of Rhythm og fékk Grammy-verðlaun á þessu ári fyrir blúsplötuna Risin' With the Blues.

Þau Ike og Tina, sem þá hét Anna Mae Bullock, hittust árið 1959 þegar hún var 18 ára. Ike gerði Tinu að aðalsöngkonu í hljómsveit sinni og hún varð brátt stórstjarna. Þekktasta lag þeirra var River Deep, Mountain High, sem Phil Spector stjórnaði upptökum á. Þá fengu þau Grammyverðlaun fyrir lagið Proud Mary, sem Creedence Clearwater Revival gerði fyrst frægt. Þau Ike og Tina eignuðust tvo syni.



Heimildir:http://mbl.is/mm/folk/frettir/2007/12/12/ike_turner_latinn/