Ef þér líkar illa við umfjöllun hans á áhugamálinu
Ekkert að smá umfjöllun um Elvis, en það er þrennt sem pirrar mig þó í þessu samhengi.
Í fyrsta lagi virðist Gullaldaráhugamálið engan veginn nóg fyrir Heiðursmanninn, og hefur hann því grafið upp allar hugsanlegar ástæður fyrir því að troða Elvis inn á sem flest áhugamál. Ég meina jól? Halló!
Í öðru lagi á lýsingarorðið “smá” bara engan veginn við í þessu tilfelli.
Og í þriðja lagi, þá held ég að ég hafi bara aldrei séð Heiðursmann senda inn grein, kork, mynda, könnun, eða nokkuð annað sem ekki tengist Elvis á nokkurn hátt. Og þá gildir engu um hvað umræðan snýst, einhvern veginn tengist Elvis þessu öllu saman!
Sjálfur er ég gríðarmikill Led Zeppelin fan, en ég kann þó að temja mig, annað en sumir.