Ég fór á seinni tónleikana, s.s sem áttu að byrja kl hálf 11 og mikið rosalega skemmti ég mér, reyndar hefði ég viljað sjá þá taka meira af Uriah Heep þar sem ég fíla þá meira heldur en Deep Purple en Zeppelin lögin voru alveg mögnuð! :D

Fór reyndar líka á Pink Floyd tónleikana og fannst þeir reyndar svolítið betri þar sem ég þekkti betur til laganna og þeir eru líka bara uppáhalds hljómsveitin mín.

En já ég er ekkert sérlega góð í að lýsa þessu eitthvað faglega bara ég skemmti mér mjög vel, var með bros og fiðring í maganum allann tímann og fannst þeir bara standa sig mjög vel!

Hvað fannst ykkur?