Þetta voru fráááábærir tónleikar og Einar er núna alveg gjörsamlega búinn að festa sig í sessi sem einn af betri gítarleikurum Íslands fyrr og síðar. Hvað er annað hægt ? Það slitnaði E strengurinn hjá honum í Comfortably Numb áður en sólóið byrjaði og hann tók síðan bæði sólóin ÁN E Strengs !!! Það er rugl !! Alveg ótrúlegt hvað stemmingin hélst í manni allan tíman og það var sungið með öllum lögunum ! :P Toppurinn var líka að fá Run Like Hell í lokin !