Nákvæmlega, maður getur ekki keypt diskana með honum en samt er þetta einn vinsælasti tónlistarmaður heimsins fyrir utan Íslands. Hann hefur tvisvar komist í rock 'n roll hall of fame (með Garfunkel og sóló) og fengið helling af grammy verðlaunum en samt er ekki hægt að kaupa frægustu diskana hans. Mér finnst skrítið hvað hann er lítið þekktur á Íslandi. Annars mæli ég með því að þú prófir að hlusta á disk sem heitir Graceland. Paul labbaði um götur Jóhannesarborgar og fann tónlistarmenn til að gera þessa plötu það er allt fullkomið við hana.