Ég mundi athuga kolaportið. Ég veit ekki um neinar aðrar plötuverslanir fyrir sunnan þar sem ég bý á Akureyri en þú ættir að geta prúttað þær niður í gott verð í kolaportinu
Valdi stendur fyrir sínu… hann er með búðina Geisladiskabúð Valda á laugarvegi, bakvið afgreiðsluborðið (svona nokkurnvegin) er hann með alveg bunka af gömlum Vínylum, ásamt fullt af geisladiskum. :)
Valdi stendur ávalt fyrir sínu. Hann er reyndar við Vitastíg, upp af Laugarveginum.
Svo er Safnarabúðin á Frakkastíg, man ekki hvað búðin heitir sem er í hliðargötu upp af Bankastræti, Kolaportið, Góði Hirðirinn, búð með notuð húsgögn á Smiðjuvegi sem ég veit ekki hvað heitir og jafnvel fleiri! Nóg til af Vínyl en þarft etv að fara oft til að finna eitthvað bitastætt - það bætist alltaf við á þessum stöðum.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..