Friends
Matthew Perry, sem leikur Chandler í sjónvarpsþáttunum um Vini, segist hafa verið nálægt því að láta lífið þegar hann var á kafi í dópneyslu. Perry glímdi við vandamál sitt í fjögur ár og segir það hafa verið afar slæman tíma. “Ég át heilan helling af pillum og drakk flösku af Vodka á dag,” sagði Perry. Hann segist vera edrú nú en er enn í eftirmeðferð. “Ég á aldrei eftir að jafna mig að fullu eftir þetta tímabil.”