Hver er uppáhaldsþátturinn þinn? Það er mismunandi álit.
Minn er “Where everybody finds out”, hún Phoebe er svo fyndin og Ross fyndin þegar hann stekkur upp í loftið. Einnig er rugby þátturinn frábær. Annars eru allir þættirnir frábærir :)
uppáhaldsþátturinn, segiru……….Ég mundi þurfa að segja “Where everybody finds out”. Er það ekki annars þegar Pheobe fattar samband Monicu og Chandlers og hún byrjar að reyna við Chandler til að stríða honum? Allavega, það er uppáhaldsþátturinn minn, ég get hlegið endalaust að honum<br><br>Og fyrst að þið eruð hérna að lesa þennan kork þá megið þið alveg kíkja á síðuna mína með því að ýta <a href="http://kasmir.hugi.is/skari2/">hingað </a
mér finst unagi þátturinn vera laaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaangmasta snilldin, ég er búin að horfa á hann 100 sinnum og finnst endalaust fyndið þegar Ross bregður Phoebe og Rachel og öskrar DANGER!!!
ég get notað þetta bragð óspart gegn stóra bróður og honum bregður alltaf jafnmikið og finnst það alltaf jafnfyndið…
Mér finnst rugby-þátturinn bestur, ég er búin að horfa á hann ótrúlega oft en fæ aldrei leið á honum! Allir Friends þættirnir eru skemmtilegir, það er enginn leiðinlegur þáttur. Joey er bestur, hann er fyndnastur!
Já rugby þátturinn er snilld :) Þegar Chandler keppir við Joey um hollensku stelpuna og hún velur chandler ekki joey,hehe. Einnig GELLER CUP , bara fyndið. Veit einhver hvar er hægt að fá þetta aðal lag sem sýnt er í þessum þætti meðan þau eru að spila (lagið var einnig í Space jam)?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..