Friends er alltof mikil amerísk vella til að þeir þori að drepa eina aðalpersónuna. Ég hef ekki horft á þættina í nokkur ár, vegna þess að þeir eru hættir að vera gamanþættir og farnir að verða sápuópera þar sem ekkert merkilegt gerist.
En ímyndiði ykkur hvað það væri kúl að í einhverjum þættinum myndi einhver af aðalpersónunum labba út úr Central Perk, ganga út á götu og verða fyrir stórum vörubíl sem er að flytja egg, deyja og egg splatterast út um allt. Enginn bjóst við þessu, en þetta bara gerðist. BAMM.
Eftir þann þátt þá myndi ég fara að horfa á Friends aftur. Þangað til að ég myndi fá leið á öllu vælinu aftur.
BlackLotus<br><br>A day without sunshine is like… um… you know, night
A day without sunshine is like… um… you know, night