Eru einhverjir hér sem hafa séð þá? Vá þetta eru svo góðir þættir! Ég dl þeim um daginn og get ekki hætt að hlægja að þeim :'D Ef þið hafið ekki séð þá endilega tékkið á þeim, bara góðir þættir! :)
Alveg skelfilega leiðinlegir þættir. Illa skrifaðir og verr leiknir. Mér leið hreinlega illa þegar ég horfði á þá og hlustaði á dósahláturinn oní lélega fimmaurabrandara. Skyldi engan undra að þeir voru teknir af dagskrá eftir bara 19 þætti.
Mér fannst þeir bara nokkuð skemmtilegir :) samt svolítið síðan þeir voru á dagskrá og man ekki mjög eftir þeim. En hvað segiru voru þeir teknir af dagskrá :O þeir voru ekki þeir bestu en svo slæmir voru þeir nú ekki. Eða…það er bara mín skoðun.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..