Ég var að horfa á Friends um daginn og fór þá að hugsa um hvað það eru alltaf fáránleg partý sem þau halda þarna í þáttunum! Það er alltaf fullt af fólki í þeim en hvaða fólk er þetta??? Hefur einhver gestanna komið fram í þáttunum áður?? Þetta er dáldið skondið, fullt af gestum sem standa á víð og dreif um íbúðina og tala saman en það virðist ekki vera að Friendsgengið hafi eitthvað við þetta fólk að segja, þau tala bara við hvort annað!!!
Kveðja,
thoraeli