Eru þeir ekki að grínast með þennan þátt? held að þeir hafi farið svolítið illa með þennan húmor sem virkaði stundum þegar 70 mínútur var og hét. Núna eru þeir bara að gera sig að fíflum og ekki á góðann þátt, og það versta er að þeir fá borgað fyrir það! Þeir eru líka orðnir svo “frægir” að ef maður hittir þá einhversstaðar þá láta þeir eins og þeir eigi staðinn, þetta er bara rugl!
Ég held að þeir ættu bara að hugsa um hverskonar ímynd þeir vilja setja fram og þá sérstaklega þarna pétur gaurinn, hann er verstur af þeim. hann gæti ég aldrei borið virðingu fyrir og hinir tveir eru alveg á mörkunum að sökkva eins djúpt og hann. Come on strákar, þetta er komið gott. Fólk er komið með leið á að sjá sama þáttinn aftur og aftur. Finna allavega eitthvað nýtt efni í staðinn fyrir að gera alltaf það sama sem sást fyrst hjá simma og jóa í 70 mín upprunalega.
Vildi bara koma þessu út þar sem mér finnst þessi þáttur fáránlegur og gæti aldrei hugsað mér að horfa á hann aftur.
Takk fyrir og ekki spara skítkast ef þið virkilega hafið einhverja lögmæta skoðun á málinu.