Er enginn annar en ég orðin þreyttur á Bill Clinton bröndurum í Jay Leno? Ég meina, það er aaaaltaaaaf verið að koma með Bill Clinton brandara og þeir eru orðnir…. þreyttir. Hvernig væri að gefa manninum frið, þetta gerðist fyrir 7 árum eða eitthvað.

Svo er Jay Leno stundum alltaf með sömu fjandans brandarana, “McDonalds are coming with a hamburger with bacon, ham, cheese, lamb, and a doughnut” —- “How fat are we getting in this country!” Vá, hvað hann notar þennan oft, pirrandi brandari. Samt, Jay Leno er kóngurinn þótt ég hata að þegar gellur koma í þáttinn verður hann svo ógeðslega perralegur að ég kúgast næstum því.

Bara eitt enn, svo er ég hættur. Viðtölin við fræga fólkið eru bara pjúra snilld! Jay spyr svona “Sooo, I know you are Lakers fan, how's that going?” —– Svo kemur gesturinn með geðveikt fyndna sögu um eitthvað Lakers kjaftæði.

Samt horfir maður alltaf á þetta… allavega fram að viðtölunum, nema Tom Arnold sé í þættinum :D

Þetta er ömurlegur korkur en so be it, smá kvörtunarefni.