Friends á hvíta tjaldið?

Stjörnurnar úr Vinum eða Friends eru nú í viðræðum við framleiðendur um að gera kvikmynd um vinina sex. Myndi hvert þeirra fá tíu milljónir punda, eða um 1,2 milljarða króna fyrir.

Jennifer Aniston og David Schwimmer eru sögð vera að íhuga að taka tilboðinu. Engum sögum fer hins vegar af því hvernig viðræðurnar ganga við Courtney Cox, Lisu Kudrow, Matt Le Blanc og Mathew Perry. „Þrátt fyrir að leikararnir séu farnir í sitt hvora áttina hefur ekkert þeirra slegið í gegn eins og þau gerðu í Vinum,“ er haft eftir vini þeirra í breska dagblaðinu Daily Mail.
Tekið af mbl.is

Mér finndist æðislegt ef þetta yrði gert, ELSKA Friends.