Ég er búinn að vera að safna Friends á DVD og er kominn með allar seríurnar þ.e.a.s. 1,2,3,4,6 og vantar nr 2 og 3 í seríu 5.
Þanning að ég fór í gær út í BT í þeim tilgangi að klára þetta safn en vitið menn, þeir eru búnir að taka út DVD diskanan sem ég er búinn að vera að safna og eru komin með 6 þátta diska í staðinn, sem sagt serían er orðin 4 í stað 3 DVD.
Þanning að ef ég ætla að klára seriuna þá þarf ég að kaupa 3 DVD og verð með 2 sömu þættina á 2 diskum og tala nú ekki um hvað það skemmir safnið mitt að seria 5 sé á 4 DVD á meðan restinn er á 3.
Það er allt í lagi að mínu mati að þessir menn setji seriu 7 á 4 DVD en maður gerir ekki svona að breyta allt í einu áður útgefnum serium þar sem fólk er að safna þessu.

Einn Brálaður.