Ég var held ég níu eða tíu ára þegar ég byrjaði að horfa á Friends en ég var einu sinni að horfa á sjónvarpið og það var ekkert í því svo ég prufaði að horfa á Friends og síðan þá hef ég alltaf horft á þá.

Uppáhalds leikararnir mínir í Friends eru tvímannalaust Lisa Kudrow eða Pheobe og Matthew Perry eða Chandler. Það sem gerir Pheobe skemmtileg og fyndna er það að hún er frekar heimsk og það er algjör snilld þegar hún spilar á gítarinn. Svo er það Matthew Perry en hann er bara svo ÓTRÚLEGA fyndinn.

Ég á enga Friends þætti á VHS né DVD, en það þurfti aldrei því að Friends var einu sinni alltaf á hverjum einasta virkum degi og líka á föstudögum en núna er það held ég bara á föstudögum. En ég mun lofa ykkur því að ég mun halda áfram að horfa á þessa snilldar þætti.

Kveðja Birki