Bandaríska leikkonan Jennifer Aniston, sem er þekktust fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum Vinir (Friends), kveðst ganga í svefni. Aniston greindi frá því í viðtali við tímaritið Us Weekly, að hún hefði gengið í svefni frá því að hún var barn. Hún kveðst hafa gengið í svefni ekki alls fyrir löngu, en þá hafi hún gengið út af heimili hennar og Brad Pitts og ekki vaknað fyrr en þjófavarnakerfi heimilisins fór í gang.
“Þegar ég vaknaði stóð ég í bakgarði hússins,” segir Aniston. Hún segir að Pitt, eiginmaður hennar, hafi orðið skelfingu lostinn þegar kerfið fór í gang og hann áttað sig á því að Aniston var ekki lengur í herbergi þeirra hjóna. “Þegar ég var barn gekk ég oft í svefni út úr herberginu mínu og inn í stofuna. Mamma kveðst oft hafa rætt við mig þegar ég var í þessu ástandi án þess að ég muni eftir því,” segir Aniston í samtali við Us Weekly.

<br><br>Ég er að safna áhugamannalista fyir þá sem vilja fá Jay Leno áhugamál

Sendið mér póst ef þið viljið komast á hann :)

Listinn:
HSH17
Vinny
Hekna
csgirl
hda
yatzad
Dalros
druzlababe
Rakel87
Fruggur
Painball
Azak
Olina
Munky
Breikz
skullfucke
ragganet
BjornTB
johanng
erty