Ég er ein af þeim Friends aðdáendum sem virkilega vilja að Ross og Rachel byrji saman. Núna alla 9. seríu hafa þau næstum því verið að byrja saman, svo núna í seinustu viku kyssti bara Rachel Gavin og núna í þessum þætti flutti hún með Emmu til Joey!!
Í alvöru..þetta er bara pirrandi. Allt snýst um að þau byrji saman aftur eða hvort þau munu byrja saman aftur og hefur gert það í 9. seríur en þau hafa eiginlega bara verið einu sinni saman! manni finnst eins og þau séu alltaf að byrja saman og hætta saman en þau bara byrja aldrei saman..!! og þetta verður þreytandi til lengdar. Af hverju geta þau ekki bara byrjað saman? eða hætt að gefa vísbendingar um að það eigi eftir að gerast!!?