c/p af sambioin.is
Til þess að fá alla sex leikarana í sjónvarpsþáttunum Friends til þess að leika í tíundu seríunni af þáttunum þurfti að gera meira en að hækka launin, Warner Bros og NBC þurftu að lofa þeim kvikmynd. Kvikmyndin mun að öllum líkindum koma út um jólin á næsta ári og allir helstu leikararnir munu vera í henni. Sagt er að kvikmyndin muni verða mun djarfari en þættirnir þar sem það má fátt gera í sjónvarpi, en allt í kvikmyndum. Leikararnir Lisa Kudrow, Matt LeBlanc, Matthew Perry og David Schwimmer voru öll tilbúin að leika í fleiri seríum en Courteney Cox og Jennifer Aniston hafa náð að koma sér það langt í Hollywood að þær vilja helst hætta í sjónvarpi, Aniston er meðal annars talin vera líkleg til þess að fá Óskarstilnefningu núna í febrúar fyrir hlutverk sitt í “The Good Girl”. Leikararnir sex munu fá um 9 milljónir dala fyrir hlutverk sitt í myndinni plús góða prósentu af hagnaði, og þar sem það er næstum augljóst að myndin verði vinsæl var þetta bara of gott til að afþakka.