Ég var nú hlessa þegar ég sá að það var enginn búinn að skrifa harðorða grein með miklu blóti og ljótum orðum um það að Friends (besti og skemmtilegasti sjónvarpsþátturinn í þekktum alheimi) skuli vera kominn í hlé!!!!!!
Hvað er að gerast í heiminum? Getur maður virkilega ekki legur lagst letilega í sófann, jafnvel með smá salgæti eða poppkorn í annarri og gosdrykk í hinni, kveikt á sjónvarpinu og horft í makindum sínum á uppáhalds sjónvarpsþáttinn sinn, og hlegið dátt og haft gaman???
Jæja, kanski er ég að bregðast of harkalega við, þar sem Friend er nú bara í pásu í eina viku. :)
Þarna hræddi ég ykkur! Hahaha! En ég er samt ekki sáttur við þetta, Friends aðdáendur eru bestir í heiminum og eiga ekki að láta vaða yfir sig á skítugum skónum. Og hananú!
Friends fan #1!
P.S: Ég ætla rétt að vona að Stöð 2 sýni clip-show þáttinn þar sem leikararnir völdu uppáhalds mistökin sín við gerð þáttanna. Conan O'Brian er “host” í þeim þætti, og hann ætti að vera á dagskrá eftir nokkrar vikur ef mér skjátlast ekki! Við getum ekki beðið!