Hér kemur Biography um Chandler og manninn bak við hann, Matthew Perry.
Chandler Bing :
Chandler átti erfiða æsku, samkynhneigður faðir sem stakk af með þjóninum og lauslát móðir.
Þrátt fyrir þessa erfiðu æsku tekst Chandler að gera alla í kringum sig glaða með sprenghlægilegum setningum. Hann er frekar vitur, andstæða vinar síns og fyrrum herbergisfélaga, Joey.
Chandler á mörg sambönd að baki og öll hafa þau farið í vaskinn, nema auðvitað samband hans og Monicu.
Hann hefur farið verið með td. Ninu bókbindara, Suzy Moss (Julia Roberts), Cathy (stolin frá Joey) og hinni pirrandi Janice.
Sú eftirminnilegasta er án efa Janice með “Oh my god” línuna.
Núna er Chandler á föstu með Mon og giftingin á næsta leyti.
Matthew Perry:
Matti fæddist 19 ágúst 1969 í Massachusetts og er þar með yngsti af leikurunum í Friends.
Áður en Matthew varð eins árs skildu mamma hans og pabbi. Matti og mamma hans fluttu til Ottowa þar sem hún fór að vinna og pabbi hans flutti til L.A. til að vinna sem leikari og varð vel þekktur sem sjómaðurinn í Old Spice auglýsingunum.
Matthew ólst upp í Ottowa og varð meistari í tennis 13 ára að aldri. Þegar hann var 15 ára flutti hann til LA til að vera nálægra pabba sínum og prófa dáldið að leika og vinna að tennisnum. Hann varð No.2 junior spilari þjóðarinnar og var nærrum því byrjaður að snúa sér alfarið að tennis en þegar hann tapaði mikilvægum leik árið 1984 setti hann tennis á hilluna og byrjaði að leika. Hann fékk gestahlutverk í mörgum þáttum, td Beverly Hills 90210. Árið 1994 fór hann í prufutöku fyrir þátt kallaðan Friends, og viti menn, hann fékk hlutverkið !!!!
Árið 1997 fékk hann fyrsta almennilega kvikmyndahlutverkið í myndinni “Fools Rush In” með Sölmu Hayek. Hann fékk síðan eftir það góð kvimyndahlutverk eins og “Three To Tango” og “The Whole Nine Yards”. Nýjasta mynd hans heitir “Servicing Sarah” með Elizabeth Hurley í aðalhlutverki.