Ég er mjög mikill aðdáandi Friends, á meðal annars allar VHS spólurnar og er að safna núna þættina á DVD. En ég er ekkert að lesa um leikarana sjálfa á netinu, ef einhvar er talað um þá í Mogganum þá les ég það en annars er ég ekker að leita að upplýsingum um þau. Þegar það var verið að leika í 8. seríu þá voru Jennifer og Courteney óléttar, ég las það síðan að Courteney hafi misst fóstur og því var ekkert um það að hún yrði ólétt í þáttunum. En ég las ekkert um Jennifer, núna er ég að lesa að bumban hennar “Rachelar” hafi verið feik svo hef ég ekkert heyrt um barn Jenniferar og Brad Pitts. Spurningin mín er sú, var Jennifer aldrei ólétt eða missti hún einnig fóstur. Ef hún var ólétt hvað eignuðust hún og Brad Pitt þá og hvað heitir krakkinn?