ef þú getur ekki tekið gagnrýni að þá skaltu sleppa því að birta eitthvað hérna. Ef þetta hefði verið gott merki að þá hefði ég sagt það. Ég skrifa aldrei neitt hérna til að vera leiðinlegur við fólk. Ef ég er spurður um álit að þá gef ég það og þú ert í rauninni að spyrja alla á þessu áhugamáli um álit á merkinu þegar þú presenterar það hér. Fyrirgefðu ef þér finnst ég hafa verið dónalegur.
það sem mér finnst:
Þú ert búinn að skewa letrið og það er ekki samræmi í bili á milli stafa (kerning). Formið undir TV kemur illa út, ekkert jafnvægi og 3d effectinn engan veginn að skila sér rétt. Staðsetningin ofan á “e - inu” er heldur ekki að virka. Logoið stendur ekki og það vantar alla formun og strúktur…
Ef lærður grafískur hönnuður hefði skilað þessu merki af sér þá hefði ég orðið hissa. Þetta var presenterað sem sjónvarpstöð og þegar það er gert að þá finnst mér eðililegt að hlutirnir séu fagmannlegir.