Ég sagði
aldrei neitt ljótt um myndina, hún er flott.
Ég hef aldrei sagt neitt ljótt um neinar myndir sem þú hefur gert, þú ert mjög hæfileikaríkur grafík hönnuður, ég hef tekið eftir því. Ég hef heldur ekki séð neinan segja neitt ljótt um þessa mynd.
Það
eina sem ég var að segja er að þú mátt láta vita hvort þú gerðir myndina eða ekki, óþarfi að blanda óþarfa leiðindum inní þetta mál.
Og það er í reglunum, eða stjórnandnn bað um það
hér.
Svo þegar þú svarar ekki einu sinni fólki sem spyr hvort þú hafir gert myndina þá er eins og þú lætur að þú vilt að fólk haldi að þú hafir gert hana.
Ég hef líka tekið eftir því að fólk er farið að fá mjög mikið ógeð af ego-inu sem þú virðist hafa, og það getur(eða oftast gerir) haft áhrif á hvernig fólk dæmir myndirnar þínar. Búinn að fá ljótan stimpil um að þú sért “of góður fyrir aðra”.
Ashy…